20.03.2005
Jæja þá eru Músíktilraunir 2005 búnar og skemmst frá því að segja að úrslitakvöldið hafi verið frábært. Það er mál manna að sjaldan hafi dómnefndin átt jafn erfitt val fyrir höndum, eftir miklar bollaleggingar komst hún þó að niðurstöðu. Sigurvegari Músíktilrauna 2005 er hljómsveitin Jakobínarína úr Áslandinu í Hafnarfirði. Þeir spiluðu sig inní úrslit á Mánudagskvöldið, en það gerðu einmit Hello Norbert líka. Hello Norbert lenti í öðru sæti og í þriðja sætinu lenti hljómsveit sem spilaði á öðru undankvöldinu, þeir heita The Dyers og spila rokk bland í sínum eigin stíl.
18.03.2005
Þá eru undankvöldin búin og úrslitakvöldið runnið upp. Það fer fram í Austurbæ og opnar húsið klukkan 18:00. Í fyrra var áhuginn svo mikill að fjöldi fólks þurfti að snúa frá, því er um að gera að mæta snemma til að vera viss um að fá miða. Í kvöld munu 11 hljómsveitir berjast um verðlaunin sem eru ekki af verri endanum, en um þau má lesa á heimasíðu Músíktilrauna, www.musikitilraunir.is
Hljómsveitirnar sem komust í úrslitin eru:
01. hello norbert
02. jakobínarína
03. motyl
04. the dyers
05. gay parad
06. koda
07. we painted the walls
08. mjólk 6, og fúnk
09. mystical fist
10. jamie's star
11. elysium
Eins og áður segir verður úrslitakvöldið haldið í Austubæ og eins og áður mun húsið opna kl 18:00 og fyrsta band stíga á stokk kl. 19:00.
14.03.2005
Á föstudaginn fór fram síðasta undankvöld Músíktilrauna 2005. Þar með eru 50 hljómsveitir búnar að spila í Tjarnarbíói og kominn tími til að færa sig yfir í Austurbæ þar sem úrslitakvöldið verða haldið næstkomandi föstudag (18.mars). Þar munu 11 hljómsveitir keppa til sigurs í Músíktilraunum 2005. Síðasta föstudag ákvað dómnefndin að hleypa 3 hljómsveitum í úrslitin og því verða hljómsveitirnar 11 en ekki 10.
Hljómsveitirnar sem komust áfram eru glys-rokkhljómsveitin Mystical Fist, og rokkhljómsveitirnar Jamie's Star og Elysium. Því er ljóst að úrslitakvöldið verður fjölbreytt og skemmtilegt þar sem nokkrar rokkhljómsveitir munu etja kappi við trúbadordúett og fúnk hljómsveit til að nefna aðeins nokkrar stefnur sem við megum búast við að heyra.
Eins og áður segir verður úrslitakvöldið haldið í Austubæ og eins og áður mun húsið opna kl 18:00 og fyrsta band stíga á stokk kl. 19:00. Í fyrra þurftu tugir manna að hverfa frá þar sem seldist upp á aðeins örfáum mínútum og því nauðsynlegt að mæta snemma til að vera viss um að komast að.
11.03.2005
Fjórða undankvöld Músíktilrauna Tónabæjar og Hins Hússins fór fram í gærkvöldi (fimmtudag) í Tjarnarbíói. Fjölbreyttari tónlist var spiluð í gær en kvöldið á undan.
Til dæmis um það er trúbador dúetinn We painted the walls sem dómnefndin sendi áfram í úrslit. Þá spilaði einnig fönkhljómsveitin Mjólk, 6 og fúnk sem komst áfram á atkvæðum úr sal en hún leikur sveitt fönk í anda hljómsveitarinnar Jagúar. Þessar tvær sveittir bættust því í hóp þeirra 6 hljómsveita sem áður höfðu komist áfram í úrslitin sem haldin verða föstudaginn 18. mars í Austurbæ.
Fimmta og síðasta undankvöldið fer svo fram í kvöld í Tjarnarbíói. Tónleikarnar hefjast stundvíslega klukkan 19:00 en húsið opnar klukkan 18:00 miðaverð er aðeins kr. 700.
10.03.2005
Þriðja undankvöld Músíktilrauna Tónabæjar og Hins Hússins fór fram í gærkvöldi í Tjarnarbíói. Eins og undanfarin kvöld komust 2 hljómsveitir áfram í úrslit Músíktilrauna sem haldið verður föstudagskvöldið 18. mars í Austurbæ. Í gær var meira um þyngri rokkhljómsveitir en verið hefur. Hljómsveitirnar sem komust áfram voru Gay Parad sem komst áfram á vegum áhorfenda og Koda sem dómnefndin valdi.
Fjórða undankvöldið fer svo fram í kvöld í Tjarnarbíói og má búast við góðri skemmtun og miklu fjöri. Tónleikarnar hefjast stundvíslega klukkan 19:00 en húsið opnar klukkan 18:00 miðaverð aðeins kr. 700.
09.03.2005
Jæja, góðir rokkhálsar! Nú er öðru undankvöldi Músiktilrauna lokið og var mikið um dýrðir þetta kvöldið. Fyrsta kvennahljómsveit keppninnar kom alla leið frá Húnaþingi vestra og stóð sig með prýði. Mikið var af böndum utan af landi og þar af önnur sigurhljómsveit kvöldsins Motyl sem kom frá Hellu / Hvolsvelli og rokkaði feitt (þrátt fyrir að slíta streng í fyrsta lagi). Hin sigursveitin sem mun spila í Austurbæ 18. mars kom hins vegar úr Reykjavík og spilaði skemmtilega blöndu af rokkabillí og hippasýrurokki en það voru strákarnir í The Dyers. Frábær stemmning var í áhorfendasalnum og framkoma og umgengni gesta til fyrirmyndar.
08.03.2005
Músíktilraunir 2005 hófust með látum í gærkveldi þar sem fyrstu 10 hljómsveitirnar stigu á stokk og rokkuðu feitt. Þetta voru að öllu jöfnu yngstu böndin sem byrjuðu en yfirleitt reyna skipuleggjendur að skipta þessu niður eftir aldri. Það var þó ekki svo að sjá á hljómsveitunum í gær að þær væru með stuttan lífaldur því strákarnir stóðu sig allir með prýði og var þetta fjölbreytt og áhugaverð skemmtun. Úrslitin fóru hins vegar þannig að salurinn valdi hljómsveitina Hello Norbert til að fara áfram í úrslitakvöldið en dómnefndin valdi hljómsveitina Jakobínarína. Við óskum þessum böndum til hamingju og sjáumst í Austurbæ 18. mars.
02.03.2005
Mikið hefur verið hringt frá hljómsveitum til að fá upplýsingar um græjumál. Frá því er það að segja að við munum skaffa 3 gítarmagnara (líklegast allir Marshall), bassamagnara og trommusett. Þetta verður allt toppgræjur og hljóðkerfið sem nú verður sett upp hefur aldrei verið flottara. Það eina sem hljómsveitameðlimir verða að koma með eru hljóðfærin sín, effecta og jack-snúrur. Trommarar þurfa að koma með sneril og alla diska + kjuða (við verðum með sneril og diska fyrir þá sem ekki eiga). Ef menn eru með sérþarfir (t.d. magnara með innbyggðum effectum) þá mælum við með að menn taki það með sér. Það er alltaf betra að hafa of mikið af drasli en ekkert!
01.03.2005
Músíktilraunir 2005 hefjast n.k. mánudag 7. mars og gera má ráð fyrir að
hljómsveitirnar séu líklega að æfa eins og vitleysingar. Það tók ekki nema tvo
daga eftir að við hófum skráningu að 50 hljómsveitir voru búnar að sækja um.
Aðsókn í þátttöku hefur aldrei verið meiri og bíða tónlistarmenn og áhugasamir
eftir að fjörið byrji. Einnig hefur hlutfall stúlkna aukist töluvert og gleður
það okkur í undirbúningsnefndinni. Eftir að hafa hlustað á demo upptökur frá
hljómsveitunum erum við viss um að Músíktilraunir verði mjög fjölbreyttar og
skemmtilegar þetta árið.
25.02.2005
Ekkert í fréttum enn!