Skráning fer engöngu fram á rafrænan hátt (á Netinu) og 50 fyrstu sem greiða þátttökugjald komast sjálkrafa í Músíktilraunir.
Hljómsveit þarf að skila af sér:
1. Útfylltu skráningarblaðið
2. Upptökur á 2 frumsömdum lögum MP3 - þurfa ekki að vera vandaðar upptökur.
3. 50-100 orða lýsing á hljómsveitinni (hvaðan er hljómsveitin, hversu lengi hún hefur starfað o.þ.h.)
4.Mynd af hljómsveit (digital).
5. sex þúsund kr. þátttökugjald. (leggist inn á bankareikning)
ATH. öll gögn skulu sendast með tölvupósti á netfangið
musiktilraunir@itr.is
Skráningarblað, upptökur, mynd og þátttökugjald verður að hafa borist í síðasta lagi 25. febrúar 2005.
Á hverju undankvöldi skal hljómsveit flytja 2 frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 10 mínútur.
Á úrslitakvöldi flytur hver hljómsveit 3 frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 12 - 15 mínútur.
Hljómsveit má ekki hafa gefið út efni sitt á geisladisk, plötu eða hljóðsnældu. Talað er um útgáfu þegar efni er selt og markaðsett skipulega fyrir almenning.
Ekki er um útgáfu að ræða þegar efni er eingöngu notað sem gjafir, þrátt fyrir að það sé á geisladisk, plötu eða hljóðsnældu.
Eða eftir að hljómsveit hefur eingöngu komið út á safnplötu.
Sökum þess hversu auðvelt er að útbúa og dreifa tónlist í gegnum netið telst það ekki til útgáfu og er því leyfilegt.
Framkvæmdarnefnd Músíktilrauna 2005 áskilur sér þann rétt að hafna hljómsveitum þátttöku ef:
- Sýnishorn það sem berst á MP3 stenst ekki tónlistarlegar lágmarkskröfur sem gerðar eru til keppninnar.
- Þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir 21. febrúar 2005,
- Af öðrum ástæðum.
Ath. notkun áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð og verði þátttakendur fundnir sekir um slíka notkun er þeim tafarlaust vísað frá.
Athugið að á Músíktilraunum 2005 eru fjöldatakmarkanir þ.e. þær 50 fyrstu hljómsveitir sem skrá sig og greiða þátttökugjald komast að.
Ef eitthvað kemur upp á, t.d. ef að hljómsveit ætlar að hætta við, þá verður að tilkynna starfsmönnum Tónabæjar eða Hins Hússins það strax eða fyrir 25. febrúar 2005.
ATH! Þátttökugjald verður ekki endurgreitt