Úr Garðabænum kemur hljómsveit sem kallar sig Hydrus. Hljómsveitameðlimir eru Arnar Hilmarsson gítarleikari og söngvari, Árni Guðjónsson bassa- og píanóleikari, Bjarni Þór Jensson gítarleikari og söngvari og Gauti Rafn Ólafsson trommuleikari. Þeir eru allir sautján nema Árni sem er sextán. Hydrus spilar stonerrokk.