Fréttir:

01.04.2006

Úrslit

Hljómsveitirnar sem lentu í fyrstu 3 sætunum voru:

3. Sæti: We Made God

2. Sæti: Ultra Mega Technobandið Stefán

1. Sæti: The Foreign Monkeys

Myndir frá úrslitakvöldinu finnast hér.

 

31.03.2006

Músiktilraunir í beinni útsendingu

Úrslitakvöld Músiktilrauna verður sent út í beinni útsendingu á netinu, bæði hljóð og mynd.

Síminn stendur fyrir útsendingunni og verður tenging við útsendinguna á slóðinni www.simi.is

Þetta framtak Símans auðveldar öllum þeim sem ekki komast í Loftkastalann að fylgjast með skemmtilegu og spennandi úrslitakvöldi Músiktilrauna.

 

29.03.2006

Dagskrá úrslitakvölds Músíktilrauna, 31. mars 2006:

19:00-19:15 Jakobínarína

19:20-19.35 Who Knew
19:40-19:55 Furstaskyttan
20:00-20.15 Propanól
20:20-20:35 We Made God
20:40-20:55 Antik
21:00-21:15 Tranzlokal

21:15-21:30 HLÉ

21:30-21:45 Ultra Mega Technobandið Stefán
21:50-22:05 The Foreign Monkeys
22:10-22:25 Le Poulet de Romance
22:30-22:45 Modern Day Majesty
22:50-23:05 Sweet Sins
23.10-23.25 The Ministry Of Foreign Affairs

23:25-23:40 HLÉ

DJ Andrea Jónsdóttir Rokkmóðir

Markús H. Guðmundsson forstöðumaður Hins Hússins og Árni Jónsson forstöðumaður Tónabæjar þakka dómnefnd og styrktaraðilum.

Afhending mynda til hljómsveita

Verðlaunaafhending fyrir efnilegustu hljóðfæraleikara
• Efnilegasti hljómborðsleikarinn/forritarinn
• Efnilegasti trommarinn
• Efnilegasti bassaleikarinn
• Efnilegasti gítarleikarinn
• Efnilegasti söngvarinn/rapparinn

23:55-24:10 Úrslit kynnt

Sigurhljómsveit tekur lagið og Óli Palli þakkar öllum fyrir áheyrnina heima og að heiman.

 

25.03.2006

Í gær fór fram fimmta og síðasta undankvöld Músíktilrauna 2006. Þar með eru 51 hljómsveit búin að spila í Loftkastalanum, úrslitakvöldið verður síðan haldið næstkomandi föstudag (31. mars). Þar munu 12 hljómsveitir keppa til sigur.

Í gærkvöld, ákvað dómnefndin, í annað skiptið á þessum Músíktilraunum að hleypa 3 hljómsveitum í úrslit. Hljómsveitirnar sem komust áfram eru Furstaskyttan sem salurinn kaus í úrslit, Ultra Mega Technobandið Stefán og The Foreign Monkeys komust síðan áfram með hjálp dómnefndar. Það er því ljóst að úrslitakvöldið verður skemmtilegt og fjölbreytt.

 

24.03.2006

Fjórða undankvöld Músíktilrauna Tónabæjar og Hins Hússins fór fram í gærkvöldi í Loftkastalanum.

Hljómsveitin Modern Day Majesty frá Dalvík er örugg í úrslit eftir að dómnefndin sendi hana áfram. Salurinn sendi hinsvegar áfram hljómsveitina Le Poulet de Romance frá Reykjavík. Báðar þessar hljómsveitir eru þriggja manna og í báðum spila bræður.

Fimmta og síðasta undankvöldið fer svo fram í kvöld í Loftkastalanum. Tónleikarnar hefjast stundvíslega klukkan 19:00 en húsið opnar klukkan 18:00 miðaverð er aðeins kr. 700.

 

23.03.2006

Þriðja undankvöld Músíktilrauna Tónabæjar og Hins Hússins fór fram í gærkvöldi í Loftkastalanum.
11 hljómsveitir kepptu um 2 laus pláss í úrslitum Músíktilrauna sem haldið verður verður föstudagskvöldið 31. mars í Loftkastalanum.

Eins og áður velja áhorfendur í sal eina hljómsveit sem kemst í úrslit en dómnefndin velur aðra. Í gærkvöldi ákvað dómnefndin þó að senda tvær hljómsveitir í úrslitin. Það er því ljóst að 11 hljómsveitir munu taka þátt í úrslitum Músíktilrauna.

Áhorfendur í sal völdu hljómsveitin Who Knew, en dómnefndin valdi hljómsveitirnar We Made God og Sweet Sins. Myndir frá þriðja undankvöldinu finnast hér.

Fjórða, og næsta síðasta, undankvöldið fer svo fram í kvöld í Loftkastalanum og má búast við góðri skemmtun og miklu fjöri. Tónleikarnar hefjast stundvíslega klukkan 19:00 en húsið opnar klukkan 18:00 miðaverð aðeins kr. 700.

 

22.03.2006

Annað undankvöld Músíktilrauna Tónabæjar og Hins Hússins fór fram í gærkvöldi (þriðjudag) í Loftkastalanum. Eins og áður kepptust 10 hljómsveitir um 2 laus pláss í úrslitakvöldi Músíktilrauna sem haldið verður í Loftkastalanum, föstudaginn 31. mars.

Í gær voru það hljómsveitirnar the Ministry of Foreign Affairs og Antík sem komust áfram.

The Ministry of Foreign Affairs komst áfram á atkvæðum áhorfenda og dómnefndin valdi Antík. Þriðja undankvöldið fer svo fram í kvöld í Loftkastalnum og má búast við góðri stemmingu og miklu fjöri. Myndir frá þessu kvöldi finnast hér.

 

21.03.2006

Sigurvegarar Músíktilrauna til Manchester

Á fyrsta degi Músíktilrauna gengu Tónabær, Hitt Húsið og Icelandair frá samstarfssamningi sem inniheldur meðal annars tvo stóra vinninga fyrir sigurhljómsveit Músíktilrauna 2006. Sigurvegarar munu fá góðan stað til að spila á Icelandic Airwaves. Einnig verður sigurvegurum boðið til þeirra miklu tónlistarborgar Manchester en þar er fyrirhugað að fara á tónleika, skoða hljóðver og annað sem tengist tónlist.

Þar sem þátttakendur eru af yngri kynslóðinni er gert ráð fyrir að tveir starfsmenn Tónabæjar og Hins Hússins og tveir foreldrar fari með í ferðina sem fyrirhuguð er í maí.

 

21.03.2006

Fyrsta undankvöld Músíktilrauna Tónabæjar og Hins Hússins 2006, fór fram í gær (mánudaginn 20. Mars). 10 hljómsveitir kepptust um að tryggja sér miða á úrslitakvöldið sem haldið verður föstudaginn 31 mars. Í gær voru það hljómsveitirnar Tranzlokal og Própanól sem komust áfram. Própanól komst áfram á atkvæðum áhorfenda úr sal, en dómnefndin valdi Tranzlokal. Eins og áður segir keppa þessar tvær hljómsveitir við átta aðrar á úrslitakvöldinu sem fer fram í Loftkastalanum 31. mars.

Næsta undankvöld Músíktilrauna verður í kvöld í Loftkastalanum og opnar húsið klukkan 18:00, fyrsta hljómsveit stígur svo á stokk klukkan 19:00. Áhorfendur senda síðan eina hljómsveit í úrslit en dómnefnd velur hina. Það er því um að gera að mæta og styðja sína hljómsveit til sigurs. Frekari upplýsingar um hljómsveitirnar Tranzlokal og Própanól má finna hér á vefnum og þar er einnig hægt að nálgast upplýsingar um allar 51 hljómsveitirnar sem taka þátt í ár, ásamt dagskrá næstu kvölda. Þar má einnig sjá myndir og einnig á vef Tónabæjar, www.tonabaer.is.

 

14.03.2006

Þá fer að styttast í hinar árlegu Músiktilraunir Tónabæjar og Hins Hússins. Í ár verður boðið upp á þá nýjung að seldir verða aðgangspassar. Þeir virka þannig að þeir gilda á öll undankvöldin og veita svo forgang á 1 miða á úrslitakvöldið. Passinn kostar 2500 krónur og fer í sölu mánudaginn 20. mars kl. 16 í Loftkastalanum. Handhafi passans hefur svo vikuna 20.-24. mars sem undankvöldin eru til að tryggja sér miða á úrslitakvöldið sem mun án efa verða slegist um miða á. Allur undirbúningur gengur vel og gengið hefur verið frá samningum við Jón Skugga sem mun sjá um hljóð á kvöldunum og næstu daga verða kynnt glæsileg verðlaun sem í boði eru fyrir vinningshafa í ár. Tónabær og Hitt Húsið leggja áherslu á að Músiktilraunir eru fjölskylduhátíð og eru allir velkomnir í Lofkastalann á þessa miklu Tónlistarhátíð.

 

08.03.2006

Þá er allt orðið fullt í Músiktilraunir 2006. 50 sveitir eru skráðar til leiks en hægt er að skrá sig á biðlista með því að senda póst á musiktilraunir@itr.is . Í ár sem önnur ár koma sveitir víða að, frá Akranesi til Reyðafjarðar, Hvammstanga til Hafnar í Hornafirði og svo heill haugur frá höfuðborgarsvæðinu. Nöfnin eru fjölbreytt að vanda allt frá Bárujárn til Rökkurró, Le poulet de romance til Ministry of foreign affairs og þar fram eftir götunum. Í ár verður keppnin haldin í Loftkastalanum og er því aukið mjög sætaframboð á undankvöldunum og eru hljómsveitir hvattar til að koma með vini ættingja og aðra velunnara enda vegur álit salarins á móti dómnefnd. Það er að vanda Árni Mattíasson blaðamaður á Morgunblaðinu sem er yfirmaður dómnefndar en hann hefur setið í dómnefnd Músiktilrauna í á þriðja tug ára. Með honum í dómnefnd er einvala lið manna og kvenna sem verða kynnt til leiks eftir helgi.

 

21.02.2006

Grasrótin lifir góðu lífi. Miðvikudaginn 22 febrúar hefst skráning fyrir Músiktilraunir. Keppnin í ár er 25 ára og hefur áhugi ungra tónlistarmanna fyrir henni síst minnkað. Í fyrra fylltist í þau 50 pláss sem í boði voru á nokkrum dögum. Músiktilraunir eru orðin samofin tónlistarsögu landsins og það er varla til sú hljómsveit á íslandi í dag sem inniheldur ekki meðlim sem hefur tekið þátt í Músiktilraunum. Keppnin í ár verður með sama sniði og hún hefur verið síðustu ár, þ.e. að keppt er á undankvöldum vikuna 20.-24. mars og úrsiltakvöldið er svo viku seinna eða föstudagskvöldið  31. mars. Þetta verður því sannkölluð Tónlistarveisla sem stendur yfir í 2 vikur. Skráning fer fram á www.musiktilraunir.is og þarf hver hljómsveit að skila inn tveimur lögum á mp3 formi og greiða 6000 króna þáttökugjald og telst skráning ekki gild fyrr en það hefur verið greitt. Hægt er að fá allar frekari upplýsingar hjá starfsfólki Tónabæjar og Hins Hússins og aðstoða þau við skráningu ef eitthvað er óljóst. Keppnin í ár verður haldin í Loftkastalanum og ætti því að vera nóg pláss fyrir fjölskyldur og vini en síðustu ár hafa undankvöldin verið í Tjarnarbíó og hefur fólk þurft frá að hverfa þar sem allir miðar hafa selst upp. Í lokin má geta þess að Sigursveit músiktilrauna í fyrra Jakobínarína er á leið til Austin í Texas  nú í mars til að leika á South By Southwest hátíðinni ásamt 1300 öðrum böndum fyrir allt helsta liðið í tónlistabransanum.

 

 

 

icelandair mountaindew itr