Bjarki Már Jóhannsson Trompet og hristur.
Finnur Karlsson Hljómborð, tölvutónlist, básúna og Baritónhorn.
Björn Þorleifsson Túba, tölvutónlist og bassi.
Arnar Hrafn Árnason Söngur og gítar
Aron Steinn Ásbjarnarson Tenor- Saxófón
Ellert S.B. Sigurðsson Trommur, hljómborð og bassi.
Víðir Smári Petersen Klarinet og Bassa-klarinett
Bárujárn byrjaði sem hugarfóstur hjá okkur þegar að við vorum litlir drengir að spila saman í Skólahljómsveit Kópavogs (fyrir utan Arnar). Okkur hafði alltaf langað til að setja saman hljómsveit sem myndi slá öllum öðrum hljómsveitum við, og fara eitthverjar nýjar leiðir að því. Þegar Bjössi og Finnur fóru að fikta við tölvutónlist óx þessari hugmynd svo fiskur um hrygg. Við höfum þegar troðið nokkrum sinnum upp við góðar undirtektir og erum búnir að æfa stíft síðan við byrjuðum. Við hlökkum mikið til að koma og sýna hvað í okkur býr og deila með ykkur því sem við höfum upp á að bjóða.