Arnór Gunnarsson bassi, gítar
Árni Þór Árnason gítar, bassi, tölva
Björn Pálmi Pálmason trommur, gítar, sansúla
Hildur Kristín Stefánsdóttir söngur, selló
Ingibjörg Elsa Turchi harmóníka, glockenspiel, saxafónn
Hin Reykvíska hljómsveit rökkurró dregur nafn sitt af hinni seiðandi stemmningu sem myndast í æfingaplássi hljómsveitarinnar þegar hljómsveitin situr að verki. Hún heldur til á háalofti Bibba í Vesturbænum þar sem eina ljósglætan er dagsljósið sem skín gegnum fábrotna þakgluggana. Hljóðfærin eru síbreytileg og tónlist rökkurróar er erfitt að flokka. Þó myndi íslenskt háaloft sennilega lýsa henni best en óhætt er að segja að dulúð hafi loðað við hljómsveitina allt frá fæðingu, sem var í byrjun árs 2006. Að kovera lög úr kvikmyndinni Amelie var markmiðið áður en hljómsveitin hittist, en þegar sest var við hljóðfærin í fyrsta skipti var ekki aftur snúið. Hljóðfærin töluðu tungum og rökkurró varð útkoman.