Fréttir:

31.03.2007

Úrslit Músíktilrauna 2007 :

Shogun báru sigur úr býtum á 25. Músíktilraunum Tónabæjar og Hins Hússins.

Alls tóku 48 hljómsveitir þátt í Músíktilraunum en 11 komust í úrslit. Úrslitin voru haldin í Hafnarhúsinu og er þetta í fyrsta skipti sem úrslit Músíktilrauna er haldin utandyra. 575 manns skemmtu sér stórkostlega. dómnefnd dvaldi lengi við rökræður í húsakynnum sínum en komst að niðurstöðu um kl 22. Í fyrsta sæti varð hljómsveitin Shogun frá Reykjavík og Mosfellsbæ, í öðru sæti <3 Svanhvít frá Reykjavík og í því þriðja Gordon Riots frá Kópavogi, Mosfellsbæ og Reykjavík.

 

1. sæti - Shogun

2. sæti - <3 Svanhvít

3. sæti - Gordon Riots

 

Efnilegasti gítaleikarinn: Elvar Örn Viktorsson (Hress/Fresh)

Efnilegasti bassaleikarinn: Vésteinn Kári Árnason (Gordon Riots)

Efnilegasti trommarinn: Rúnar Sveinsson (Artika)

Efnilegasti hljómborðsleikari/forritari: Ingi Bjarni Skúlason (Hress/Fresh)

Viðurkenning fyrir íslenska textagerð: <3 Svanhvít

Efnilegasti söngvarinn: Stefanía (Davíð Arnar)

Athyglisverðasta hljómsveitin: Klístur

 

29.03.2007

Úrslitakvöld Músíktilrauna 2007

Það eru 11 hljómsveitir sem munu keppa til úrslita á Músíktilraunum 2007 í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsinu. Úrslitakvöldið fer fram laugardaginn 31. mars kl. 17 og hefst miðasala kl. 16, miðaverð er 1000 kr.

Hljómsveitir sem fam koma eru SkyReports, Shogun, Spooky Jetson, Magnyl, <3 Svanhvít!, Loobyloo, Gordon Riots, The Custom, The Portals, Hip Razical og Soðin Skinka.

Sigurvegarar Músíktilrauna 2006 Foreign Monkeys munu opna kvöldið með nokkrum lögum.

Í tilefni 25 ára afmælis Músíktilrauna verður Björg Sveinsdóttir með myndasýningu á skjávarpa með myndum frá síðustu 20 árum Músíktilrauna.

Einnig verður Billi með ljósmyndasýningu af öllum hljómsveitum sem fram hafa komið á Músíktilraunum 2007.

 

23.03.2007

Í kvöld komust hljómsveitirnar SkyReports og Gordon Riots áfram í úrslit á fimmta og síðasta tilraunakvöldi Músíktilrauna 2007. Áhorfendur völdu Gordon Riots en dómnefnd SkyReports.
Alls keppa ellefu hljómsveitir á úrslitakvöldi tilraunanna sem fram fer í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur laugardaginn 31. mars.

 

22.03.2007

Í kvöld komust þrjár hljómsveitir áfram á fjórða og næstsíðasta tilraunakvöldi Músíktilrauna Tónabæjar og Hins Hússins. Flest atkvæði áhorfenda hlaut hljómsveitin The Custom úr Reykjavík en dómnenfdin ákvað að senda auk hennar tvær hljómsveitir í úrslit að þessu sinni. Þær voru Reykjavíkursveitin Shogun og Hip Razical frá Sauðárkróki. Fimmta og síðasta tilraunakvöldið fer svo fram í Loftkastalanum annað kvöld (föstudag).

 

21.03.2007

Í kvöld komust hljómsveitirnar Soðin Skinka, frá Hvanneyri og <3 Svanhvít! frá Reykjavík áfram á þriðja tilraunakvöldi Músíktilrauna 2007. Hin fyrri fór áfram á flestum greiddum atkvæðum frá áhorfendum en hin síðari hlaut náð fyrir eyrum dómnefndar. Hljómsveitirar slást í hóp hinna fjögurra sem þegar hafa komist áfram á úrslitakvöld tilraunanna sem fram fer í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur laugardaginn 31. mars.
Aldur keppenda á tilraunakvöldunum hækkar með hverju kvöldinu og því verður meira um nemendur framhaldsskólanna á sviðinu í Loftkastalanum á þeim tveimur tilraunakvöldum sem eftir eru.

Einnig má geta þess að tvær ljósmyndasýningar með myndum af Músíktilraunum eru í fullum gangi í Loftkastalanum. Annars vegar er um að ræða yfirlitssýningu á myndum Bjargar Sveinsdóttur sem tekið hefur myndir af Músíktilraunum um árabil. Þar er meðal annars að finna myndir af hljómsveitunum Yukatan, Maus, XXX Rottweiler og Jakobínurínu þegar þær voru að stíga sín fyrstu skref í músíktilraunum auk fjölda annarra. Á hinni sýningunni er að finna myndir teknar á kvöldunum í ár teknar af ljósmyndaranum Billa. Myndirnar frá tilraununum í ár eru jafnframt til sölu.

 

21.03.2007

Ljósmyndasýning og sala á myndum af Músíktilraunum 2007
Líkt og á Músíktilraunum síðasta árs verður sett upp ljósmyndasýning í anddyri Loftkastalans í ár. Þar eru hengdar upp myndir af hljómsveitum sem taka þátt daginn eftir að þær koma fram. Myndir af kvöldunum má einnig skoða á heimasíðu Músíktilrauna, www.musiktilraunir.is daginn eftir að þær eru teknar. Sýningin í ár er jafnframt sölusýning og er áhugasömum bent á að hafa samband við Tónabæ í síma 510 8800 til þess að panta mynd af sýningunni. Einnig má panta myndir með tölvupósti á netfangið musiktilraunir@itr.is og skulu þá teknar fram eftirfarandi upplýsingar: Nafn kaupanda; nafn hljómsveitar; Heimilisfang kaupanda; símanúmer. Verð myndar eru 1500 krónur og þær eru afhentar án ramma í umslagi eftir að Músíktilraunum lýkur 31. mars.
Allar myndir á sýningunni eru teknar af ljósmyndaranum Billa.
Nánari upplýsingar má nálgast í miðasölu Loftkastalans eftir kl 14, eða í síma 510 8800.

 

20.03.2007

Keppni á öðru kvöldi Músíktilrauna 2007 fór fram í Loftkastalanum í kvöld. Alls léku níu hljómsveitir fyrir gesti og keppnin var ekki síður spennandi en á fyrsta kvöldinu þegar hljómsveitirnar Loobylloo og Magnyl tryggðu sér sæti í úrslitum. Í kvöld komumst áfram hljómsveitirnar Spooky Jetson sem var kosin áfram af áhorfendum og The Portals sem dómnefndin ákvað að senda í úrslit.
Þriðja undankvöld fer fram annað kvöld. Miðasala hefst klukkan 18:00 og fyrsta hljómsveit stígur á svið á slaginu 19:00.

 

20.03.2007

Það voru nálægt 300 manns sem mættu á fyrsta undankvöld Músíktilrauna, Tónabæjar og Hins Hússins 2007. Fór það fram í gær (mánudaginn 19. mars). Níu hljómsveitir kepptust um að tryggja sér miða á úrslitakvöldið sem haldið verður laugardaginn 31. mars. Í gær voru það hljómsveitirnar Magnyl og Loobyloo sem komust áfram. Loobyloo komst áfram á atkvæðum áhorfenda úr sal, en dómnefndin valdi Magnyl. Eins og áður segir keppa þessar tvær hljómsveitir við átta aðrar á úrslitakvöldinu sem fer fram í Listarsafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi 31. mars.
Næsta undankvöld Músíktilrauna verður í kvöld í Loftkastalanum og opnar húsið klukkan 18:00, fyrsta hljómsveit stígur svo á stokk klukkan 19:00. Áhorfendur senda síðan eina hljómsveit í úrslit en dómnefnd velur hina. Það er því um að gera að mæta og styðja sína hljómsveit til sigurs.
Frekari upplýsingar og myndir má sjá á vef Tónabæjar, www.tonabaer.is.
Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast í Tónabæ í síma 510-8800

 

19.03.2007

20 ár af Músíktilraunamyndum
Í tilefni þess að í kvöld eru Músíktilraunir haldnar í 25. sinn verður opnuð sýning í Loftkastalanum á ljósmyndum Bjargar Sveinsdóttur sem hún hefur tekið á Músíktilraunum í gegnum árin. Björg tók fyrst myndir á Músíktilraunum 1987 og hefur tekið myndir nánast öll tilraunakvöld upp frá því. Hún sýnir myndir frá 1987 til dagsins í dag, en myndunum verður varpað á vegg í anddyri Loftkastalans.
Björg hefur átt myndir í bókum, dagblöðum og tímaritum og einnig haldið þrjár einkasýningar á myndum sínum, í Reykjavík og Lundúnum, auk þess sem sýningin Humar eða frægð – Smekkleysa í 20 ár, sem sett hefur verið upp víða um heim, byggðist að stórum hluta á myndum hennar af tónlistarmönnum sem starfað hafa með Smekkleysu.

 

16.03.2007

Úrslitakvöld Músíktilrauna á Listasafni Reykjavíkur
Það er okkur sönn ánægja að kynna að úrslitakvöld Músíktilrauna mun fara fram í Listasafni Reykjavíkur / Hafnarhúsinu laugardaginn 31. mars en ekki Verinu eins og áður hefur verið auglýst. Tónleikar munu hefjast kl. 17 og mun húsið opnar kl. 16. Miðaverð á úrslitakvöld er 1000 kr.

 

15.03.2007

Tónabær og Hitt Húsið hafa farið í öflugt samstarf við Icelandair um framkvæmd á Músíktilraunum 2007 og 2008. Í því felst meðal annars að Icelandair kemur að Músíktilraunum sem stærsti bakhjarl. Einnig veitir Icelandair verðlaun sem meðal annars eru spilun á Icelandic Airwaves og skipulögð hópferð með sigurvegurum.

Samkomulag náðist við FÍH um gott samstarf við skipulag á Músíktilraunum 2007 líkt og undanfarin ár. FÍH sendir fulltrúa í dómnefnd og kemur einnig að sem bakhjarl.

 

13.03.2007

Undankvöld Músíktilrauna 2007 verða haldin í Loftkastalanum 19. 20. 21. 22. og 23. mars. Tónleikar hefjast stundvíslega kl. 19 og húsið opnar kl. 18. Miðaverð er 700 kr.

Líkt og á síðasta ári verða aðgangspassar að öllum undankvöldunum til sölu á 2500 kr. og veita þeir forkaupsrétt að einum aðgöngumiða að úrslitakvöldinu.

Úrslitakvöld Músíktilrauna verður haldið í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, laugardaginn 31. mars, kl. 17 og opnar húsið kl. 16. Miðaverð er 1000 kr.

 

12.03.2007

Skráningu í Músíktilraunir 2007 lauk föstudaginn 9. mars með fullri skráningu. Það stefnir í góðar tilraunir í ár þar sem fjölmargir ungir og efnilegir listamenn munu koma fram. Upplýsingar til keppenda varðandi uppröðun á kvöldin mun berast þeim í dag eða á morgun. Einnig munu allar upplýsingar birtast á næstu dögum á heimasíðu Músíktilrauna.

 

icelandair mountaindew itr