Saga Músíktilrauna:
Músíktilraunir hafa verið stór þáttur í tónlistarlífi Íslands. Upphafið má rekja til samstarfs Tónabæjar
og SATT (Sambandi alþýðuskálda og tónlistarmanna) sem m.a. stóðu fyrir
maraþontónleikum í kjallara Tónabæjar í nóvember 1982. Allar götur síðan
hefur þessi tónlistarviðburður verið einn aðal vettvangurinn fyrir ungar
íslenskar hljómsveitir og tónlistarfólk á aldrinum 13-25 ára til að
koma tónlist sinni á framfæri.
Sigurvegarar Músíktilrauna frá upphafi:
1982 - Dron
1983 - Dúkkulísurnar
1984 - Verkfall kennara, keppni féll niður
1985 - Gipsy
1986 - Greifarnir
1987 - Stuðkompaníið
1988 - Jójó
1989 - Laglausir
1990 - Nabblastrengir (Umbilical cords)
1991 - Infusoria (Sororicide)
1992 - Kolrassa Krókríðandi (Bellatrix)
1993 - Yukatan
1994 - Maus
1995 - Botnleðja
(Silt)
1996 - Stjörnukisi
1997 - Soðin Fiðla
1998 - Stæner
1999 - Mínus
2000 - XXX Rottweiler
hundar
2001 - Andlát
2002 - Búdrýgindi
2003 - Dáðadrengir
2004 - Mammút
2005 - Jakobínarína
2006 - The Foreign Monkeys
|