Ingi Bjarni Skúlason Hljómborð
Gunnar Leó Pálsson Trommur
Elvar Örn Viktorsson Gítar
Haraldur Gunnar Guðmundsson Rafbassi
Hress/Fresh varð til fyrir örugglega rúmum tveim árum þegar Elli og Halli hittust í samkvæmi. Ingi Bjarni og Halli voru með plön um að spila einhvern hressan bræðing í skólanum. Tenglsin voru einhvern veginn þannig að Elli og Halli voru gamlir skólafélagar, Ingi og Halli eru skólafélagar, Ingi og Elli voru saman í Tónlistarskóla Árbæjar og eru nú saman í FÍH og Halli og Gunni voru saman í hljómsveitinni Gay Parad.
Hressa Freshið hefur spilað á mörgum stöðum og komið víða við á þessum tíma sem bandið hefur verið til. Hress/Fresh hefur spilað á stöðum eins og Iðnó, Tjarnarbíó, MH, MR, FB, Hitt húsið, Kaffi Hljómalind og mörgum fleiri fallegum holum í 101.
Hress/Fresh er erfitt að skilgreina en það er á hreinu að þar sem hressið kemur saman þar er partý. Einnig má bæta því við að okkur er illa við þegar fólk segir tónlistina okkar vera jazz.